Jobs at i8 Gallery

Gallery Associate

i8 gallerí leitar að starfskrafti með góða samskiptahæfni til að sjá um fjölda verkefna. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni, þar á meðal að taka á móti gestum gallerísins, veita eiganda og öðru starfsfólki stuðning, og eiga í samskiptum við listamenn, viðskiptavini og fagfólk í listheiminum. Fyrri reynsla af skrifstofustörfum, þekking á samtímalist og góð færni í rituðu og töluðu máli bæði á íslensku og ensku eru nauðsynlegir þættir í starfinu. Um er að ræða 100% starf sem „Gallery Associate“ – vinnutími er 9-5 mánudag til föstudags. Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf sem fyrst.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

-       Samskipti við viðskiptavini og gesti gallerísins

-       Samskipti við fjölmiðla hérlendis og erlendis

-       Umsjón með samfélagsmiðlum gallerísins

-       Umsjón vefsíðu

-       Undirbúningur kynningarefnis

-       Aðstoð við listamenn galleríssins við ýmis verkefni

-       Þátttaka í þróun sýningarstarfs og nýrra verkefna

-       Aðstoð við stjórnendur galleríssins

 

Hæfniskröfur

-       Háskólamenntun sem nýtist í starfi 

-       Framúrskarandi íslensku og ensku kunnátta

-       Þekking og áhugi á samtímalist

-       Þekking á samfélagsmiðlum (Instagram, Meta Business Suite), auk skilnings á PR vinnu

-       Þekking á myndvinnslu og vefsvæðum

-       Kunnátta á Adobe forrit (Acrobat, inDesign, Photoshop), Microsoft forrit (Word, Excel) og netverslun (Shopify) er kostur

 

Áhugasöm eru hvött til að senda umsókn og ferilskrá á jobs@i8.is

January 14, 2026